Færsluflokkur: Bloggar
12.7.2008 | 10:58
Þreytt!
Búin að vera svo þreytt undanfarna daga að það er bara með ólíkindum! Reyndar búin að vera að vinna mikið og svo búið að vera aukafólk hjá mér. Þó það sé gaman kostar það líka aukavinnu....... Það verður nú bara að viðurkennast að hún yngsta dóttir mín er ekkert of dugleg, það vantar allt frumkvæði hjá henni. Jú, jú, hún gerir hlutina um leið ef hún er beðin, en að hún taki upp hjá sjálfri sér að gera eitthvað, það er af og frá.
Á eiginlega að vera komin í sumarfrí, en tek tvo stubba eftir helgina til að losna við vakt 27.ágúst, svo ég geti verið í sumarbústað með stórfjölskyldunni lengur en bara yfir helgina. Við erum með 4 sumarbústaði við Apavatn 22. - 29.ágúst, 2 stóra og 2 minni. Sædís og Ingi verða með sínar fjölskyldur í minni bústöðunum, svo verð ég með mitt lið í öðrum stóra bústaðnum og svo verða mamma og pabbi, Hrönn, Palli með sína dóttur og Gerður Sif með sitt lið í hinum bústaðnum þannig að þetta verður heljar fjör
Ásdís Rún fór suður aftur á þriðjudaginn, talar um að koma aftur í ágúst. Rebekka Lind flutti inn í gær, mamma hennar farin suður, leggur af stað til Búlgaríu í nótt. Hún verður til 4.- 5.ágúst .
Það var hittingur hjá sjúkraliðunum (við vorum 18 saman í skóla)á fimmtudagskvöldið, komu reyndar ekki nema 5, fólk farið á flakk og upptekið við e-ð annað. Þetta var samt fínt að hittast yfir kaffi eða bjór og rabba saman, heyra fréttir hver af annarri. Það segir sennilega mest um launin hjá þessari starfstétt að þær eru óðum að flykkjast í önnur störf, þar sem er ekki vaktir um kvöld, helgar og nætur en sömu eða hærri laun. Er ekki orðið eitthvað að í þjóðfélagi sem getur ekki borgað sæmileg laun fyrir ummönnunarstörf? 2 sjúkraliða veit ég um sem fóru að vinna við símsvörun og fá hærri laun heldur en þær fengu sem sjúkraliðar!! Önnur af þeim útskrifaðist með mér. Svo er ein sem fékk sér vinnu á skólabókasafni, önnur er að fara að vinna sem stuðningsfulltrúi og ein er að fara að vinna á leikskóla. Auðvitað eru það umönnunarstörf, en þær losna við vaktavinnuna og segjast fá lítið lægri laun (en núna, með vaktaálagi) og svo er á það að líta að á sjúkrahúsum, öldrunardeildum og í heimahjúkrun ( alla vega hér á þessu landshorni)er ekki séns að fá bara dagvaktir. Þetta er sama sagan hjá Hjúkkunum, Ljósmæðrum (jafn langt nám og læknar). Kennarar og leikskólakennarar eru heldur ekki öfundsverðir af sínum launum.......... Kjaramálanefndin hjá Sjúkraliðum hefur verið að tala um að helst vildu þau sjá okkur á sömu launum og Rannsóknarlögreglan ( svipað langt nám, vaktir og álag ) en við náum ekki einu sinni launum venjulegs lögreglumanns............ Haldið að það skipti einhverju máli að í annarri stéttinni eru mestmegnis karlmenn en í hinni mestmegnis konur??????
Úff, ætli maður stoppi ekki eftir svona útblástur.......
Hafið það gott um helgina
Bloggar | Breytt 29.7.2008 kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2008 | 09:15
Vinna og barnabörnin eða barnabörnin og vinna!
Ásdís Rún er búin að vera hér í viku, verður í viku í viðbót núna, kemur svo aftur í ágúst. Hún er orðin 10 ára síðan í janúar. Svo er hún Rebekka Lind (verða 7) mín, hún er nú meira en minna hér, handleggsbraut sig um daginn á línuskautum, getur þar af leiðandi ekki farið í sund og ekki að hjóla, en lætur sig ekki vanta á fótboltaæfingarnar eða leikjanámskeiðið. Verður nú aðeins að passa upp á að missa ekki af neinu.
Björn Daníel er hér enn með mömmu sinni og verður fram yfir skírn sem verður 16.ágúst.
Theódóra Björg (6) hefur nú líka komið, bæði til að heimsækja ömmu og afa og líka til að leika við hinar tvær. Ætlar að fá að gista hjá ömmu og afa á föstudaginn ( Rebekka Lind líka)
Baltasar Leví (10) hefur aftur á móti minna sést hér, rétt skotist hér inn til að fara í tölvuna.
Svo er það hann Ívar Elí (1), en hann hefur nú ekkert verið hér nema með foreldrunum.
Melinda Máney (6) er víst að koma til að vera hjá pabba sínum eftir helgina, komum þá til með að hitta hana eitthvað.
En þær systur Aniku Sól (10) og Emblu Sif (6) verðum við víst að bíða með að hitta þar til í haust eða vetur, þá á að fara út til að hitta þær og foreldrana (Spán)
Er eiginlega farin að telja niður í sumarfrí. Fer í frí á hádegi þann 11.
Eru samt frekar margar vaktir eftir, fékk að færa tvær frá ágúst til að geta lengt fríið mitt í þann endann.............
Var á morgunvakt í gær. Fer á næturvakt næstu tvær nætur, kvöldvaktir á lau. og sun., morgunvaktir á mán., mið. og fim. og stubb á fös. og svo er það SUMARFRÍ.
Finnst það æðisleg tilhugsun þó það verði sennilega ekkert farið nema í mesta lagi yfir 1 eða 2 helgar...............
Hafið það gott, elskurnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.6.2008 | 16:25
Móðir og Barn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.6.2008 | 10:57
Matarboð og vín!
Var með matarboð um helgina, sem ég er nú reyndar frekar dugleg að hafa! Hér voru 18 manns samankomið, ef allir eru taldir, allt frá 2 mán. til 68 ára. Var með bæði grillaðan lax í Piripiri og grillað lamb og rababaraböku með ís í eftirrétt. Fólk gat líka valið sér drykkjarföng með matnum, eftir smekk, hvort það vildi blávatnið, gos, hvítvín, rauðvín eða bjór. Eftir öll herlegheitin var svo boðið upp á sterkari drykkjarföng með kaffinu
Það er nú svo sem ekkert nýtt heldur, en ekki veit ég alveg hvað gerðist með þessa konu hér, sem alvön er að fá sér vín eða bjór með mat. ( Mjög sjaldan sem eitthvað sterkara er drukkið nú orðið) Allavega varð undirrituð drukkin er líða tók á kvöldið Skil nú ekkert í því, fékk mér rauðvín og hvítvín með matnum, og svo fékk maður sér eitt glas af Kúburommi svona til að rifja upp skemmtilega ferð og svo var innbyrt EITTHVAÐ af Koníaki
Hafði nú vit á því að láta mig bara hverfa inn í rúm með viðkomu á einum stað
Vaknaði svo hress og kát um 7 leytið, fór fram og tók aðeins til eftir herlegheitin, setti í uppþvottavél og svona. Skreið svo bara aftur upp í rúm og sofnaði! Var mest hissa á að heilsan skyldi ekki vera verri miðað við ástandið á mér þegar ég fór að sofa En fékk sko heldur betur að heyra það hjá börnunum mínum, daginn eftir að þessa kvölds yrði sko minnst, " þegar amma varð full" , hmmmm, ekki alveg það sem maður vill að verði munað eftir ! En móðir mín elskuleg, sagði að ég hlyti að hafa verið svona illa fyrirkölluð og þreytt, ég hefði nú ekki drukkið svo mikið........
En hver sem ástæðan var, þá kunni ég mér ekki hóf, og varð bara dauðadrukkin........
Knús til ykkar allra!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2008 | 16:01
Fermingin búin!
Auðvitað er maður löngu kominn heim, komum heim á þriðjudagskvöld, eftir velheppnaða austurferð. Síðan er maður búinn að vera að vinna, ammast , njóta góða veðursins.......
Veit ekki hvað þessi bloggleti kemur til með að standa lengi, kannske fram eftir sumri
Hafið það gott elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.6.2008 | 13:32
Er að fara austur!
Fer að vinna í kvöld og svo er það allur morgundagurinn í bíl! Er að fara austur á Hérað í fermingu hjá bróðurdóttur minni, henni Erlu Guðný. Verð fyrir austan fram á mánudag eða þriðjudag. Kalli fór á þriðjudag til Noregs, er á fiskeldisráðstefnu í Myre i Vesterålen, flýgur heim og bara beint austur á morgun. Hann verður sennilega kominn á undan mér austur. Á laugardaginn ætlar hann svo að dunda sér með bleikjuseiði sem eru búin að vera fyrir austan í rúman mánuð. Elías Þór er búinn að vera að hugsa um þau og nú er ætlunin að koma þeim upp í vötn og sjá svo til hvort þau lifa.
Iðunn Ýr og Björn Daníel verða hér eitthvað áfram, fá Sigga í heimsókn um helgina.
Set svo að lokum nokkrar myndir af barnabörnunum Stolt frænka með litla frænda sinn í fanginu.
Hér er svo ein af Ívar Elí, hann varð eins árs í mars.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2008 | 18:06
Það sem maður er með í höndunum þessa dagana (fyrir utan börnin ;-))
Hef ekki verið mikið að handavinnast núna en samt alltaf eitthvað, aðalega verið að sauma í þessarri mynd og leyniSAL sem verið er að gera í klúbbnum. Svo auðvitað tekið nokkur spor í eitthvað af myndunum sem eru langt komnar, set inn myndir þegar ég klára eitthvað
Á prjónunum eru tvö stykki, set inn myndir þegar ég klára þau (EF), kláraði nú vagnteppið, ætla samt ekki að setja inn nýja mynd af því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2008 | 11:20
Blóm- ég elska blóm af öllum stærðum og gerðum!
Það er ekki hægt að segja annað en að fagur er hann, Túnfífilinn okkar sem að er eitt okkar sterkasta blóm.
Laufblöðin á mörgum plöntum eru algert augnayndi.
'Islensk fjallaplanta sem lýsir upp umhverfið með sínum sterkgulu blómum.
Flauelsblóm sem er eitt af fjölmörgum litskrúðugum sumarblómum.
Elska að sá fyrir inni- og útiplöntum...
Fæ alltaf einhverskonar blómaveiki á vorin, sái og kaupi plöntur.....
sem því miður duga yfirleitt ekki eins lengi og hér áður fyrr, þá átti maður sömu plönturnar í mörg ár.... Set hér samt mynd að lokum sem tekin er af einni margra ára plöntu, sem gleður mig á hverju ári með fullt af blómaþyrpingum.....
Blómakveðjur til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2008 | 12:34
Lífið er ljúft!
Lífið er ósköp ljúft þessa dagana. Yndislegt veður dag eftir dag, helst það sé farið að vanta rigningu upp á gróðurinn. Nóg að gera hjá manni bæði úti og inni, en samt alveg hægt að leyfa sér að njóta þess að vera til. Setjast niður með fjölskyldu og vinum yfir góðum mat, með rauðvínsglas í hendi....... Njóta þess að vera með barnabörnunum, bæði stórum og smáum.......... Eiga góða stund með manninum mínum........ Horfa á alla fegurðina í kring um okkur......... Gróðurinn inni og úti..... Jafnvel að setjast niður einstaka sinnum með handavinnu eða lesa góða bók....... Löngu búin að læra að þó einhversstaðar sé ryk eða dótið ekki alveg á réttum stað, þá er alveg hægt að slaka á, þessi verk bíða bara, þau fara ekki neitt!!!!!
Vona að þið eigið eins ljúfa daga og ég......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2008 | 13:37
Bloggleti eða mikið að gera?
Þið farið nú að gefast upp á mér, öllsömul! Búin að vera svo löt við að blogga undanfarið að það hálfa er nóg.
Þann 19. fjölgaði hér í heimili um helming, en þá komu Iðunn Ýr og Björn Daníel vestur og ætla að vera hér eitthvað fram eftir sumri. Siggi(pabbinn) er farinn að vinna utanbæjar, þannig að þau hefðu orðið mikið tvö ein, þá var auðvitað mikið betra að skella sér vestur í félagsskap og smá dekur hjá mömmu/ömmu. Alveg yndislegt að hafa einn svona lítinn að dúlla með þegar tími gefst til.
Layla mín fór inn á Klepp núna í vikunni, í eitthvað langtímaprógram. Eitthvað er verið að hræra í lyfjunum, svo er iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, félagsfræðingur og sálfræðingur. Allt er þetta undit tryggri yfirumsjón geðlæknis, vonandi að þetta verði til að henni líði eitthvað betur. Hún og Ásdís Rún ætla svo að koma vestur í frí um mánaðarmótin júlí-ágúst.
Ási Gunnar er búinn að kaupa sér bíl. Er eiginlega húsnæðislaus núna, var selt húsnæðið sem hann var í. Fékk inni hjá Iðunni Ýr og Sigga til að byrja með.
Guðrún Ósk vinnur og vinnur(safna fyrir utanlandsferðinni) Rebekka Lind er að klára skóla, tónlistarskóla og sundæfingar. Fórum á vortónleika tónlistaskólans á dögunum til að hlusta á dömuna
Var bara gaman að því, þau eru alveg yndisleg þessi börn!
Rebekka Lind kemur og verður hjá okkur í 2 vikur seinni partinn í júlí þegar mamma hennar skreppur utanlands.
Þannig að þegar maður er ekki að vinna, þá hefur maður verið að ammast og reyndar eitthvað farið smá í garðvinnu.........
Bið að heilsa ykkur öllum í bili!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)