Skemmtilegir dagar framundan!

Þetta eru búnir að vera frekar erfiðir og snúnir dagar undanfarið!  Mikið að gera í vinnunni og tekist á við ýmislegt í þyngra kantinunum á tilfinningasviðinu!  Fór að fylgja ungri konu til grafar fyrir helgina.   Hún var bara 4 árum eldri en elsta daman mín og hafði tekið þá ákvörðun að lífið væri henni um megn! Ég er búin að þekkja foreldra hennar í fjölda ára, þó sambandið sé ekki eins náið núna og það var hér á árum áður!  Þetta er eitthvað sem maður vill ekki að nokkur þurfi að upplifa.  En ansi hlýtur líðanin að vera orðin slæm þegar svona ákvörðun er tekin! Hún Layla mín er búin að gera nokkrar tilraunir, misalvarlegar þó, en í tvö skipti stóð ansi tæpt!

En lífið heldur áfram, þýðir ekkert annað en horfa á björtu hliðarnar og treysta því að bjartari tíð sé framundan fyrir foreldra, systkini og börn þessarar ungu konu! Þó tíminn lækni ekki öll sár, þá deyfir hann þau í flestum tilfellum.

Strákurinn minn ætlar að koma vestur á miðvikudag og vera fram á páskadag( þarf að mæta í vinnu á annan)  Svo eru systkini mín að koma vestur með sínar fjölskyldur, þannig að við verðum öll systkinin hér um páskana, nema Palli, hann er úti á sjó!

Ég er búin að bjóða í mat á skírdag og ef allir mæta verða það um eða rétt yfir 30 manns, verður bara gaman! Grin  Svo er mamma búin að bjóða í mat á laugardag......

Hittist nú svoleiðis á að ég verð að vinna bæði á föstudag og annan, þó þetta sé fríhelgi en maður nýtur þess bara enn betur að vera með fjölskyldunni á milli!  Er alla vegna ekki á næturvöktum alla helgina eins og ég var núna um helginaWink

Jæja, verð að fara að hætta núna, þarf að fara út og moka grillið upp á pallinumShoveling Snow 

Svo var ég búin að skrá mig á tilraunanámskeið hjá Framvegis; Samskipti á vinnustað, þarf að fara að huga að því Blush svo ég renni ekki út á tíma!

Sendi knús á ykkur öll og eigið þið ánægjulega daga framundanHeart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Æi já, alltaf svo skelfilegt þegar fólk sér ekki aðra útleið en svona - bara ef maður gæti sýnt þeim ljósið sem ætíð er stutt undan. En það er auðvitað ekki svo auðvelt, þau sjá ekki ljósið og því taka þau þessa ákvörðun. Málið er bara fyrir nánustu að vinna hratt og vel í þessu sorgarferli og standa vel saman. Eftirlifendur þurfa muna að þau gátu ekkert gert til að stöðva svona atvik, og því mega þau ekki falla í það að kenna sjálfum sér um svona sorg.

  Alltaf dásamlegt um svona hátíðir þegar margir koma saman. Það styrkir böndin og gefur manni svo mikið þegar fjölskyldur eru nánar og hittast svona af og til. Viss um að þú átt eftir að eiga yndislega páska þó þú þurfir að brjóta þá upp með vinnu líka. Knús á þig í vinnuvikuna og páskana.

Tiger, 17.3.2008 kl. 16:08

2 Smámynd: www.zordis.com

Mikið er sorglegt þegar þessi leið er tekin og óska ég þess að styrkur og ljós friðar skíni á fjölskyldu og aðstandendur!

Gleðilega Páska mín kæra!

www.zordis.com, 17.3.2008 kl. 22:09

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Knús og hugg engin orð ná yfir hugsanirnar og tilfinningarnar sem koma upp í hugann. Sendi ljós ...

Gleðilega Páska

Ragnhildur Jónsdóttir, 20.3.2008 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband